Það er bara eitt Þjóðarblóm og það er ÉG :)
Bjarni ;)
Yndið mitt eina :)
22.04.2006 14:23:33 / Þjóðarblómið

Nýir tímar?

Ég er að prófa mig áfram á nýjum stað! Ég mun halda áfram hérna þangað til ég hef gert upp hug minn :)

slóðin er: Þjóðarblómið =  http://thjodarblomid.blog.is

Annars er ég bara enn uppi í rúmi að hora á FRIENDS - 7. seríu - þessa sem ég keypti í gær :) Hún er búin að rúlla bara síðan ég kom heim úr vinnunni í nótt :) Dásamlegt alveg :) Þetta er svo skemmtilegt :)

Ég er að hugsa um að fara í sturtu og fá mér að borða og horfa á meira FRIENDS eða One Tree Hill sem byrjar kl. 3 :)

Æ krakkar, hafið það gott :) Endilega segið mér hvað ykkur finnst um hitt bloggið :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 16:30:38 / Þjóðarblómið

Framtíðin ráðin

Ef ein ákveðin kona mætti ráða þá væri framtíð mín alveg ráðin - reyndar fyrir utan eiginmann - en að öðru leyti er planið alveg tilbúið hjá henni varðandi mig. Fyndið samt því konan þekkir mig óskaplega lítið, það eina sem hún veit er hver pabbinn minn og mamma eru og að ég sé mikið í kristilegu starfi.

Planið hennar fyrir mína framtíð lítur einhvern veginn svona út:
  • Útskrifast úr Kennó næsta vor.
  • Fá kennarastöðu við Grunnskólann í Garði.
  • Taka við öllu kristilegu starfi í Garðinum, sunnudagaskóla og TTT.
  • Og búa þar til æviloka.
Held svona án gríns að hún sé byrjuð að leita að einbýlishúsi handa mér :)

Mamma mín hringdi í mig áðan til að skila kveðju til mín frá þessari konu. Þá hafði hún á orði að hún væri orðin aðeins of gömul fyrir allt þetta kristilega starf og ég væri sú eina sem gæti tekið við af henni!

En annars er ég bara búin að njóta þess að hanga í dag :) Vaknaði nú samt alveg fyrir hádegi :) Lærði smá og hafði það fínt með Law and Order í dvd spilaranum. Naut þess svo að hanga aðeins meira. Ákvað hvað ég ætla að skrifa um í lokaritgerðinni í Nútímabókmenntum. Núna þarf ég bara að nálgast bækurnar en ég held að mamma ætli að redda því fyrir mig. Ég fór upp í Perlu og fjárfesti í einni seríu af Friends :) Alveg nauðsynlegt að eiga :) Fór svo með flöskur í endurvinnslu. Til hvers er maður að hafa fyrir því að safna þessu? Maður fær nánast ekkert fyrir þetta... En nú er smá pláss í geymslunni minni... fyrir fleiri flöskupoka :)

Held ég ætli ekki að hafa þetta lengra í dag. Hafið það gott og njótið helgarinnar :)

En mig langar enn að fá svör við spurningunum tveimur í næstu færslu fyrir neðan :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 02:01:53 / Þjóðarblómið

Svarið nú

Ég er ekki í stuði fyrir langt blogg... held ég :$ Er orðin soldið þreytt :$ það er enginn sybbinn kall hérna :| Drasl...

Af hverju þjáist ég af þeirri leiðinda þörf að þurfa að þóknast öllum?? Þetta gertur í alvöru talað verið soldið mikið erfitt sko!!! Segi já við öllu.. eða svona næstum... ef það skaðar ekki mig eða aðra... :$



Og í lokin spurningar sem ég vil fá svör við:

1. Hvaða frægu persónu myndiru vilja eiga one night stand með?? - Af hverju??

2. Hvaða frægu persónu myndiru vilja eyða ævinni með?? - Af hverju??



Gleðilegt sumar :)

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 00:49:00 / Þjóðarblómið

Ölver í faðmi fjalla

Ég er loksins orðin nettengd þökk sé símvirkjanum sem kostar mig 8400 krónur og Fiffa, sem hefur endalausa þolinmæði gagnvart mér :) Takk elsku Fiffi (ég veit þú kíkir stundum hingað ;) )

Smá fréttir: Ég er búin að samþykkja að taka 8 flokka uppi í Ölver í sumar :) Það þurfti nú ekkert að pína mig, verð að viðurkenna það. Það sem hefði haldið mér í bænum er ekki lengur til staðar þannig að um að gera að ná áttum og safna kröftum (eða já... kannski ekki)... á einum yndislegasta stað í heimi :) Ég hlakka til og veit að í 7. flokki verður reunion frá því í fyrra :) Allavega við foringjarnir, ég, Gulla, Sólveig og Iðunn og ég vona að Írena Rut verði með okkur :) 7. flokkur var einmitt einn besti flokkurinn okkar í fyrra - fáar stelpur og endalaust mikil sól :) mmm :)

Ég verð líka að vinna í Húsasmiðjunni eins og mér hentar :) og það verður örugglega mjög fínt :) Verð alveg allan maí og heilar tvær vikur í sumar og svo bara eftir 16. ágúst :) Ég er farin að vinna þar eins mikið og ég get og fyrsta helgin mín verður þarnæstu helgi. Ég fæ enn ekki að hætta í 10-11 og sé fram á að vinna tvær vinnur alveg fram að mánaðarmótum maí/júní :$ Það er ekkert mikið, ég veit það alveg, en þegar manni líður ekki vel í vinnunni þá verður þetta erfitt :) En þetta verður skárra með hækkandi sól og hækkandi hita :)

Ég er í páskafríi frá skólanum alveg fram á mánudaginn næsta, en var að vinna í gær í 10-11 og á helgina þar :$ en var í dag og verð á morgun í Húsasmiðjunni :) Byrja 12 og verð komin út 17:30 :) Sumardagurinn fyrsti = stuttur dagur :) Þetta er voðalega næs :) Það er samt soldið hættulegt að vinna þarna - það er svo mikið til af flottum kertum og kertastjökum, hnífum, matarstellum og ég veit ekki hvað og hvað... launin eiga alveg eftir að fara aftur til Húsasmiðjunnar!! Held það sé alveg á hreinu! :$

Ég held svei mér þá að ég hafi ekkert meira að segja í bili nema játa það að ég er alveg að verða komin með ógeð á skyndibitamat :$ Og það er ekkert grín. Ég er líka farin að finna vont bragð af kóki :$ Hvað er að koma fyrir heiminn??? :o


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 15:06:22 / Þjóðarblómið

Partý..

Ég skellti mér í partý í gær sem var bara nokkuð skemmtilegt :) Partýhaldarinn var hún Jóhanna María og húsdýrin hennar - systir hennar og frændi. Þetta var ágætis partý. Reyndar ekkert voðalega fjölmennt en góðmennt engu að síður. Ég þurfti að kenna 21 árs gömlum manni af hverju páskarnir væru haldnir! Ég fékk einnig á mig titilinn perri sem ég skil ekkert í :$

Ég fæ vonandi internettengingu heim til mín á morgun. Annars hef ég fátt að segja, er að bíða eftir að bróðir minn komi heim svo ég geti kíkt á stærðfræðina með honum :$ Oh well oh well.



» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 20:45:19 / Þjóðarblómið

Leiðindin halda áfram!

Ég er búin að vera úr sambandi við umheiminn svo lengi að ég hreinlega veit ekki hvað ég á að skrifa hérna inn!! Ég gæti sagt ykkur frá páskunum mínum en þið mynduð í alvörunni deyja úr leiðindum... mér tókst það meira að segja næstum. En ég fór nú samt einu sinni í sund - með Hlín - og tvisvar í bíó - annars vegar með Frikka og hins vegar með Fiffa - og þurfti að borga í hvorugt skiptið :) Gott að eiga ríka - eða ríkari - vini heldur en ég er :haha: Annars er ég að mestu leyti bara búin að hanga ein heima hjá mér með sjónvarpinu mínu og tölvunni, sem ég nýtti til að horfa á Friends, fyrst nettengingin var ekki til staðar!

Ég er í Keflavík núna og verð fram á morgundaginn allavega. Mér leiðist ekkert lítið. Jóhanna er reyndar búin að bjóða mér í heimsókn til sín á eftir og örugglega á djammið eftir það en ég veit ekki hvort ég nenni því... Æ ég er að mygla hérna :( en ég hef þó internetið til að skemmta mér... ef ég væri heima hjá mér væri ég dauð úr leiðindum... og það er ekkert grín!!

Við pabbi - eða bara pabbi - ætlum að skipta um dekk undir bílnum mínum á morgun, það er víst kominn tími á sumardekkin :) Ég hef nú samt alveg skipt næstum því alveg sjálf um dekk á bílnum mínum :) Alveg satt sko!! Þá var pabbi nýkominn úr fyrri hjartaþræðingunni og mátti ekkert gera þannig að hann leiðbeindi mér og hoppaði á felgulyklinum til að losa og herða... annars gerðum við mamma það alveg sjálfar og ég gerði fullt alveg sjálf ;) Svo dugleg :)

Ég er búin að fá einkunn úr prófinu sem ég fór í á mánudaginn síðasta. Ég fékk 8 í orðhluta- og hljóðkerfisfræði :) Finnst það nokkuð gott. Enn sem komið er er meðaleinkunnin mín rétt fyrir neðan 8, en þegar siðfræðieinkunnin drullast rétt inn þá kemur meðaleinkunnin til með að lækka aðeins :( en vonandi ekkert alvarlega... Ég set mér það markmið á að fá allavega 8 í öllum þeim áföngum sem ég klára núna í vor... og slæ ekki höndinni á móti 8.5 eða 9 ;) en það verður bara að koma í ljós...

En annars vona ég bara að þið hafið átt gleðilega páska :) Er að hugsa um að reyna að halda áfram með leiðarbókina því ég var að fá lokaritgerðarefni í hausinn núna áðan og líst best á að bera saman tvær skáldsögur - þannig að það verður nóg að gera næstu daga og alveg fram í maí :$ Mikið af verkefnum sem þarf að klára og skila :$ Eða kannski frekar stór verkefni sem þarf að klára og skila :$

En bið að heilsa í bili :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 21:46:13 / Þjóðarblómið

Gelgjumyndaskortur

Hrikalega er erfitt að vera internetlaus!! Ég er búin að vera án nettengingar síðan í hádeginu í gær og það er án gríns að fara með mig!! Það er margt fólk sem getur ekki án tölvunnar sinnar verið en án nettengingar er tölvan mín bara ekkert skemmtileg!! Og það er ekkert grín! Ég er ekki búin að gera neitt annað en að horfa á Friends síðan í hádeginu í gær :$ Eða jú, ég fór aðeins út en það er ekkert til að tala um... eða kannski jú, ég fór á tónlistarmarkaðinn í Perlunni með Fiffa í gær og keypti þrjá geisladiska :) Ekki nógu góður árangur samt.. hafði hugsað mér að fara út með dvd myndir líka en það voru ekki til neinar gelgjumyndir :!: Trúið þið því?? Mér finnst það í alvöru hrikalegt!!! Og enga Finding Forrester heldur :$ Hvað er málið? Af hverju er þessi mynd hvergi til?? En ég keypti Kalla Bjarna og fékk loksins lagið sem mig langaði svo í. 499 kr. og það eru alveg þrjú önnur lög sem hægt er að hlusta á líka þannig að þetta er í lagi :) En það böggar mig mest að geta ekki hlustað á hann í tölvunni minni. Get bara hlustað á hann í dvd-spilaranum og bílnum.

Ég er heima hjá mömmu og pabba :) Og það er pláss fyrir mig, þau færðu baðkarið úr rúminu mínu :) Mamma mín á afmæli í dag og það var family-dinner :) Það er alltaf gaman :) Á morgun eru svo tvær fermingarveislur en ég fer bara í aðra þeirra. Ætti reyndar að vera að vinna líka en já... það er spurning hvort maður er séra jón eða Jón... :$ læt ykkur kannski vita hvernig fer ef ég nenni.

Ég fæ ekki nettenginguna mína fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudaginn, vona að símvirkinn geti komið þá!! Oh ég þoli ekki svona rugl. Þetta er búið að vera endalaust vesen!! Þannig að þið þurfið að þola ekkert blogg frá mér fyrr en á þriðjudaginn.. og það sem meira er - að hitta mig ekkert á msn!! Ég er ekki viss um að þið lifið það af... ég meika það pottþétt ekki!!!

Eitt sem ég verð að tjá mig um!! GAurinn sem er "kærastinn" hennar Samantha í Sex and the city er alver drullufallegur!! Að sjálfsögðu jafnast ekkert á við vin okkar Tinnu, hann Chad Michael Murray... en oh my God!! Hann er of fagur þessi maður!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 11:36:04 / Þjóðarblómið

Ennþá sæt!

Ég fann tengil á gamla bloggið mitt á bloggi hjá einhverjum vini mínum sem hefur ekki updeitað sig í milljón ár. Ég las yfir hana og fannst þetta bara nokkuð skemmtilegt :) kannski maður skipti aftur yfir... það er aldrei að vita.. man samt ekkert passwordið inn á það eða neitt :$ Ég byrjaði að blogga 30. október 2004 og færði mig yfir á þetta blogg 9. nóvember sama ár. Komst að því að ég hitti Fiffa í fyrsta skipti 31. október 2004 eftir að hafa heyrt mikið talað um hann :) Og fannst það sko geðveikt merkilegt :) Enda er hann algert æði :)

Ég tilkynnti mömmu minni í gær að ég ætlaði að kaupa mér nýja tölvu þegar ég fæ námslánin. Ég er búin að ákveða þetta fyrir nokkru síðan en átti eftir að segja mömmu frá því. Ég fæ aðstoð sérfræðings við að kaupa næstu tölvu svo ég endi ekki með gallagrip eins og ég á núna :) Og núna er ég farin að hlakka til að fá nýja tölvu :) Oh hvað það verður gaman. En samt smá ráðgáta hvað ég geri við þessa, því í raun er ekkert að henni, annað en að hún er hávær og lítur út eins og samlokugrill.. eða það segir einn vinur Fiffa og núna öll fjölskyldan hans - eða allavega pabbi hans :)

Ég er að hugsa um að fara í sturtu og finna mér eitthvað að gera... það er hrikalegt að geta ekki sofið lengur en til tæplega 10 svona loksins þegar maður má það!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 21:53:47 / Þjóðarblómið

Oh svo sæt... og hógvær

Í morgun fór ég í annað af tveimur prófum sem eru á dagskránni. Það gekk svona lala bara. Þetta var próf með handbókinni og mér fannst tíminn sem gefinn var heldur stuttur fyrir þetta. Og er það yfirleitt með verkefni/próf sem eru sett fyrir hjá þessum manni. En þetta reddaðist nú alveg :) En ég held ég falli ekkert.

Ég er ótrúlega þreytt eitthvað núna :$ Skil ekki alveg af hverju, ekki eins og ég sé búin að gera eitthvað mikið í dag. Jú ég vaknaði náttúrulega kl. 9 til að fara í próf og ég fór soldið seint að sofa í gær af því að ég var að læra :$ En það hjálpaði samt fullt að eyða þessum tíma í gær/nótt í lærdóm :) Vissi allavega svona nokkurn veginn hvað stóð í bókinni :)

Ég þreif stofuna, eldhúsið og herbergið mitt í dag - þetta er nú allt eitt rými - en miklu meira kúl að tala um það svona heldur en að tala bara um eitt herbergi. Þyrfti kannski að þrífa baðið því kannski fæ ég viðgerðarmann hingað á morgun því niðurfallið í sturtunni minni er stíflað :S Og botninn er ansi fljótur að fyllast af vatni! Svo þvoði ég af annarri sænginni af því að það er búið að vera miklu lengur á heldur en það sem er á minni sæng. Þarf að fara niður í þvottahús og athuga hvort sænguverið sé orðið þurrt því annars get ég ekki sofið með sængina :$ Ég á samt enn eftir að vaska upp en er að hugsa um að láta það bíða aðeins lengur :$ Letihaugur dauðans, ég veit!!

Oh ég leit í spegil áðan og mér fannst ég svo sæt!! Ég er ekkert að grínast. Dagný gaf mér eyrnalokka í jólagjöf sem ég var með í dag (er reyndar búin að kveljast í öðru eyranu en það er að lagast) og hárið var í tagli og smá toppur niður með kinninni og ég var bara geðveikt sæt ;) En það er ég nú alltaf ;)



» 5 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 23:15:27 / Þjóðarblómið

Barnapíu-öndin

Í sunnudagaskólann í morgun mættu tvö börn og aðeins annað þeirra talaði íslensku. Fyrir utan okkur Sólveigu, Jóhann og kirkjuvörðinn voru fjórir fullorðnir og þar af þrír sem skildu varla hvað fór fram! Gífurlega góð mæting :$

Ég var að passa litla sæta prinsinn minn frá rúmlega fimm til tæplega 10 og það var æðislegt! Jói bróðir var með mér og það gekk ótrúlega vel :) Enda er þetta barn svo ótrúlega dásamlegt. Benóný er svo skemmtilegur og endalaust mikill prakkari og finnst sko geðveikt gaman að hrekkja frænkuna sína :) Það þarf svo lítið til að gleðja hann sem er dásamlegt :) og ef maður er eitthvað pínu þreyttur eða pirraður þá er minnsta mál að láta bara taka sig upp í smá tíma og fara svo aftur niður á gólf :) Við vorum að reyna að sofna þegar mamma og pabbi komu heim... en það breyttist!! Það var nefnilega svo gott að sjá mömmuna sína og faðma hana :)

Það eru tvær æluklessur fyrir utan húsið mitt eftir föstudagskvöldið!! Oj bara :^) Finnst þetta alger vibbi. Önnur er beint fyrir framan þvottahússdyrnar og á hliðarveggnum á stigahúsinu og þetta er ógeðslegt :evil: ég kúgast sko endalaust af að labba þarna fram hjá... en ég veit samt að það er miklu meira sálrænt hjá mér heldur en nokkuð annað! Það er ekki einsog það sé lykt af þessu en bara að það sé æla fyrir framan mig er bara nóg til að framkalla æluviðbrögð hjá mér :!:

Varirnar á mér eru í algeru hakki þessa dagana! Alltaf þegar ég er í prófum og bara almennt ef ég er kvíðin eða stressuð kroppa ég á mér varirnar sem veldur sárum og bólgum. Akkúrat núna líður mér eins og þegar ég nefbrotnaði en þá varð vörin á mér þreföld og ég var eins og önd í framan! Það var ekki fallegt og tilfinningin er svipuð þótt ég sé ekki næstum því eins slæm! Er búin að vera með litað gloss um helgina til að fela sárin!! Ég verð að hætta þessu kroppi!! En alveg eins og sumt fólk getur ekki hætt að naga neglurnar get ég ekki með nokkru móti hætt þessu!! Drasl!!

Ég fór á KSS fund í gær svona í og með af því að ég var beðin um að mæta :) Litla hjartað mitt ætlaði gersamlega að rifna af stolti og gleði og gott ef það láku ekki tár :)

Mig langar ennþá til að vita hvort ég sé prímadonna. Ásta systir er sú eina sem hefur svarað spurningunni minni. En ég ætla að halda áfram að læra - próf á morgun!!

Ég þjáist af alvarlegu samviskubiti!!!

Sean Connery er ofursvalur!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 00:40:36 / Þjóðarblómið

Gleymda Primadonnan

Þá er komin ný stjórn í KSF og óska ég þeim til hamingju með það: Jón Ómar, Þráinn, Erna Björk, Heiðdís og Sólrún :) Líst bara ágætlega á þetta. Ég ákvað að fara ekki í framboð enda hafði enginn samband og lýsti yfir áhuga sínum yfir því að fá mig í framboð - stjórn. Ég veit að maður á ekki að bíða eftir því að það verði hringt í mann en ef þið hafið alltaf verið sú manneskja sem enginn man eftir fyrir neitt, bekkjarfélagar til 8 ára muna ekki eftir þér og það er gengið fram hjá þér þegar þú býður þig fram í eitthvað þá þætti þér líka rosalega gott ef einhver myndi nú eftir þér... svona rétt til tilbreytingar :!: Skiljið þið þetta? Kjörnefnd - eða annar helmingur hennar - baðst afsökunar á þessu og ég virði það við hann :)

Jón Ómar kallaði mig primadonnu áðan :!: Er það satt? Er ég primadonna?? Svör óskast!! með rökum!! Fleiri tóku nú undir þetta með honum og Hlín tók utan um mig og hló :lol: veit ekki alveg hvað það á að þýða :$ Oh well :)

Æ vitið þið hvað? Ég er orðin ótrúlega þreytt, mig langar úr sokkabuxunum og pilsinu og ég er farin að þrá koddann minn og sængina... ekki mína sæng að vísu en hey... þá sæng sem ég nota núna :)

Endilega svarið spurningunni minni :) Ætla að sofna yfir sjónvarpinu :) Góða nótt :)

OJ ég gleymdi einu!! Ég á ellefu ára fermingarafmæli í dag, 9. apríl!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 16:08:04 / Þjóðarblómið

Lafandi brjóst

Alltaf þegar ég sé konur á miðjum aldri og þaðan af eldri með brjóst lafandi niður að pjöllu eða lengra verð ég svo ótrúlega glöð yfir því að brjóstin mín eru lítil!! Er búin að ætla að játa þetta soldið lengi en gleymi því alltaf jafnóðum. Það er ein kona sem kemur alltaf í Búlluna sem er með brjóstin hangandi niður að hnjám og mér finnst það mjög ljótt. Sem betur fer eru brjóstin mín lítil þannig að þau koma örugglega aldrei til með að hanga neitt...eða sjást yfirleitt... :lol:

Ég er ofsalega svekkt og sár yfir vali á sóknarpresti í Keflavíkurprestakalli!! Skiptir 13 ára reynsla í þessari kirkju engu máli?? Af hverju getur prestur með miklu minni reynslu sótt um og fengið starfið þegar sr. Sigfús er klárlega hæfur í það?? Rökin fyrir þessu vali eru ekki einu sinni góð - ég heyrði þau um helgina og það er eitt af þessum rökum sem ég gæti mögulega tekið í sátt en hin þrjú eru bara kjaftæði!!

Ég man ekki hvað ég ætlaði að segja meira. Ég er að fara í lokapróf á mánudaginn þannig að það er kannski best að ég byrji að læra!!

En vitið þið hvað? Ég er ekki búin að fara í sturtu síðan í gær!! Og mér líður hrikalega.. en eg fer bara á eftir áður en ég fer á KSS/KSF fund :)

Þetta er rosalegt!! Bara tveir broskallar í allri færslunni!! Össs þetta gengur ekki :)



» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 16:29:29 / Þjóðarblómið

Gelgjumyndir

Ég ætti kannski að blogga fyrir aðdáendur mína áður en ég held út úr bænum. Eg er að fara upp í Vindáshlíð á eftir með KFUK-deildina mína. Það verður vafalaust voðalega gaman... en kannski væri tímanum mínum betur varið hérna heima í lærdóm því ég er að fara í lokapróf á mánudaginn :$ Ég ætla reyndar uppeftir á mínum bíl, var að ákveða það áðan svo ég geti þá farið aðeins fyrr til að læra :$ úffff... ég verð að ná þessu prófi...

Bjarni, ég er ekki viss um að ég geti alltaf bloggað eitthvað málefnalegt...en það verður bara að koma í ljós.

Ég fór í heimsókn til Hlínar og Þorgeirs í gær, það var voðalega gaman, Miklar umræður um kirkjuna, fermingarfræðsluna eins og hún er í dag og hvernig hún ætti að vera... skiptar skoðanir í gangi um þær.

Ég er alveg að verða komin með ógeð á öllum dvd-myndunum mínum... æ nei ég segi það nú kannski ekki en mig er allavega farið að langa til að horfa á eitthvað annað en clueless og legally blonde í öll mál... Núna hljóma ég eins og ég geri ekki annað en að horfa á dvd.. en í alvöru.. ég á smá líf... :) En ég fór samt á Lagersölu Senu áðan og fjárfesti í einni mynd, Good Will Hunting  :) hún er bara góð... vantar samt ennþá myndina mína, Finding Forrester :(

En þetta verður ekki lengra að sinni, ætla í sturtu og svona áður en ég fer upp í Hlíð.. ég á líka eftir að pakka... :$ Drasl...

Minni á skoðanakönnunina hérna sviðsvinstra megin á síðunni :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 20:43:22 / Þjóðarblómið

Skiltaákeyrsla heiðingjanna

Ég kem örugglega til með að fá á mig kommentið: Oh Þóra, þú ert svo mikil dramadrottning eftir síðustu færslu ;) En ég er það ekkert :)

Ég var á síðasta KFUK-fundinum mínum og ég er svo ótrúlega hamingjusöm með það :) Ekki það að mér finnist eitthvað leiðinlegt að vera í KFUK, alls ekki, en ég var bara orðin þreytt á að þurfa að keyra til Keflavíkur einu sinni í viku til þess að mæta á fund :$ Ég veit samt ekki hvort ég ætli að vera með deild næsta vetur... en það er samt viðkvæðið á hverju vori og samt enda ég alltaf með deild :) Sjáum hvernig fer í haust :) Hvort ég megi vera að því með KHÍ, HÍ, vinnu og lífinu :)

Af hverju keyrir fólk á skilti? Við Fiffi vorum að keyra í Skipholtinu dag og vorum að fara að beygja niður á Kringlumýrarbrautina og við - eða allavega ég - sáum bíl sem hafði lent í árekstri og ég hélt fyrst að hann hefði lent á litlum flutningabíl. Við fórum upp í Kringlu og á bakaleiðinni sá ég framan á bílinn (við vorum sko að koma af American Style og sáum bara aftan á hann) og hann hafði keyrt á beygjuskiltið! Mér fannst það fyndið :lol: og ökumaðurinn og farþegar hans voru enn inni í bílnum :lol: búnir að vera þar í soldinn tíma.

Mér líður alltaf soldið illa þegar ég kaupi kók í Bónus. Ég kaupi nefnilega kók í svo ótrúlega miklu magni... núna var ég til dæmis að undirbúa mig fyrir að fara upp í Hlíð um helgina og læra undir próf því ég er að fara í lokapróf á mánudaginn næsta þannig að ég keypti 18 hálfs líters í plasti, eina súperdós kippu og eina 2 lítra :$ Ég er ekkert illa haldin... það er ekki satt :lol:

Þeir sem semja fyrir búðarfólk eru nú meiri heiðingjarnir :!: Búllan mín og sömuleiðis allar aðrar 10-11 búðir eru opnar á föstudaginn langa :!: Ég á ekki til orð yfir helgispjöllunum!!! :evil: Glætan að ég myndi mæta ef ég ætti þennan dag :!:

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 15:17:14 / Þjóðarblómið

:)

Oj það eyddist allt sem ég var búin að skrifa... og ég er að flýta mér þannig að ég skrifa það ekki allt aftur... kannski þegar ég verð komin til Keflavíkur...

Ég er hætt að skrifa allt sem ég er að hugsa inn á bloggið... auðvitað hefur ekkert allt sem ég hugsa farið hingað inn en til að valda ekki óþarfa áhyggjum eða veseni þá fáið þið bara staðreyndir um það sem ég er að gera eða eitthvað annað málefni sem snertir mig ekki beint... oh whatever... who cares anyway :)

Ég hef verið beðin um að mæta á KSS-fund á laugardaginn :) Þá er síðasti fundur fráfarandi stjórnar og þau eru með vitnisburði og Gísli Davíð snillingur bað okkur Rakel (
i gegnum Rakel að vísu en engu að síður) um að koma og hlusta því hann vill að þeir sem áttu þátt í að gera hann að þeim manni sem hann er í dag mæti á fundinn á laugardaginn :) Og ég hlakka til að mæta :) Einnig hefur hún Tinna mín beðið mig að koma :)

En ég þarf að fara að drulla mér til Keflavíkur, var að fatta að ég á eftir að telja saman hverjir vinna mætingarverðlaunin!!! :$ úps :$


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Dagatal